Hoppa yfir valmynd
8. mars 2012 Matvælaráðuneytið

Febrúar tvenn fjórtán þúsund ber! 
Erlendum ferðamönnum í febrúar fjölgar um 22%

Hækkandi sól - Ein góð frétt á dag
Hækkandi sól - Ein góð frétt á dag

Ferðaárið 2012 fær fljúgandi start og erlendir ferðamenn í nýliðnum febrúarmánuði reyndust vera um 28.000 og fjölgaði því um 5.000 frá því í fyrra. Ferðamenn eru nú ríflega helmingi fleiri en árið 2003 og á því níu ára tímabili sem Ferðamálastofa hefur haldið úti talningum í Leifsstöð hefur aukningin milli ára í febrúarmánuði verið að jafnaði 9,4%.

Bretar langfjölmennastir í febrúar
Af einstaka þjóðernum voru flestir ferðamenn í febrúar frá Bretlandi eða 37,7% af heildarfjölda. Næstfjölmennastir voru Bandaríkjamenn eða 13,9% af heildarfjölda, síðan komu Norðmenn (7,0%), Danir (5,5%), Frakkar (4,8%), Þjóðverjar (3,9%), Japanir (3,9%),  Svíar (3,7%) og Hollendingar (3,7%). Samtals eru þessar níu þjóðir 84,1% af heildarfjölda ferðamanna í febrúar.

Þróunin frá áramótum
Frá áramótum hafa 54 þúsund erlendir ferðamenn farið frá landinu sem er tæplega 20 prósenta aukning frá árinu áður. Um 51% aukning hefur verið í brottförum Breta, tæplega þriðjungsaukning (29,7%) í brottförum N-Ameríkana og tæplega fjórðungsaukning í brottförum frá löndum sem flokkast undir ,,Annað”.  Brottförum Norðurlandabúa og þeirra sem koma frá Mið- og S-Evrópu hefur hins vegar fækkað lítils háttar.

Nánar á vef Ferðamálastofu

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta