Hoppa yfir valmynd
23. mars 2012 Matvælaráðuneytið

Framtíðarskipan fjármálakerfisins

Framtíðarskipan fjármálakerfisins
Framtíðarskipan fjármálakerfisins

Efnahags- og viðskiptaráðherra, Steingrímur J. Sigfússon, kynnti á ríksstjórnarfundi í morgun skýrslu sína til Alþingis um framtíðarskipan íslenska fjármálakerfisins og opinbert eftirlit með því.

Fjármálakreppa síðustu fjögurra ára hefur leitt í ljós ýmsa vankanta og veilur á fjármálakerfinu og jafnframt vakið upp margvíslegar siðferðilegar og pólitískar spurningar sem takast verður á við og svara, eigi að takast að endurreisa traust almennings til banka og fjármálamarkaða. Af þessum sökum er þörf fyrir gagngerar endurbætur á umgjörð og skipan fjármálakerfisins víða um lönd. Ísland er hér engin undanteking. Allar götur frá bankahruninu haustið 2008 hafa breytingar á lagaumgjörðinni um fjármálastarfsemi á Íslandi verið til umræðu.

 Á síðastliðnu hausti lýsti Árni Páll Árnason, þáverandi efnahags- og viðskiptaráðherra, því yfir á Alþingi að hann hyggðist láta semja yfirlitsskýrslu um fjármálakerfið og framtíðarþróun þess, sem lögð yrði fram á þessu þingi. Skýrslan sem lögð var fram í ríkisstjórn í morgun, Framtíðarskipan fjármálakerfisins,  er hugsuð sem framlag til umræðu um þetta mikilvæga viðfangsefni, bæði innan þings og utan. Í skýrslunni eru ekki lagðar fram fastmótaðar tillögur, en aftur á móti fjallað um  meginviðfangsefni og viðhorf á þessu sviði með opnum hætti og með vísan til alþjóðlegrar þróunar. Auk umfjöllunar á Alþingi og í nefndum þingsins verður skýrslan send hagsmunaaðilum og háskólastofnunum til álits og umsagnar þegar eftir að hún hefur verið lögð fram á þingi.

Efnahags- og viðskiptaráðherra hefur jafnframt skipað starfshóp sérfræðinga – með þátttöku erlendra sérfræðinga – til þess að undirbúa tillögur um samræmda heildarumgjörð laga og reglna um alla starfsemi á íslenskum fjármálamarkaði. Í sérfræðingahópnum eru Gavin Bingham, fv. framkvæmdastjóri Central Bank Governance Forum hjá BIS í Basel, Jón Sigurðsson, fv. forstjóri Norræna fjárfestingarbankans (NIB) í Helsingfors og Kaarlo Jännäri, fv. forstjóri fjármálaeftirlits Finnlands.

Í verklýsingu sérfræðingahópsins kemur fram að honum er ætlað að rýna texta skýrslunnar um framtíðarskipan fjármálakerfisins og kynna sér  skoðanir og athugasemdir sem fram kunna að koma við umræður um hana innan þings og utan. Á grundvelli skýrslunnar og annarra tiltækra gagna er sérfræðinganefndinni ætlað að:

  1. Kanna hvernig lögum og reglum um fjármálastarfsemi og framkvæmd eftirlits á Íslandi hefur verið breytt í tilefni af fjármálahruninu 2008;
  2. greina veikleika sem enn kunna að vera til staðar í lögum og reglum um fjármálamarkaðinn og tengda markaði og í framkvæmd fjármálaeftirlits og eftirfylgni með því og gera tillögur til úrbóta;
  3. gera tillögur um það hvernig unnt er að skipta betur verkum með einstökum þátttakendum á fjármálamarkaði og styrkja stofnanaumgjörð fjármálaeftirlits, bæði hvað varðar eindaeftirlit og þjóðhagsvarúð þ.e. heildareftirlit;
  4. gera tillögur um hvernig best fari á því að setja samræmda heildarumgjörð laga og reglna um alla starfsemi á fjármálamarkaði.

Hópnum er síðan ætlað að skila til efnahags- og viðskiptaráðherra tillögum um breytingar á lagaumgjörð fjármálamarkaðarins, sérstaklega hvað varðar ábyrgðarsvið Seðlabanka Íslands og Fjármálaeftirlitsins. Ráðherra hyggst síðan leggja fram frumvarp á haustþingi 2012 byggt á tillögum sérfræðingahópsins. Sérfræðingahópurinn mun verða ráðuneytinu til ráðgjafar við samningu frumvarpa um þetta efni.

Vonir eru við það bundnar að skýrslan um framtíðarskipan fjármálakerfisins sem hér liggur frammi og væntanlegt álit sérfræðingahópsins, sem kynntur var til sögunnar hér að framan, geti myndað gagnlegan umræðugrundvöll svo að upplýst umræða geti beint framtíðarþróun fjármálakerfisins á farsælar brautir.

Framtíðarskipan fjármálakerfisins: Skýrsla efnahags- og viðskiptaráðherra til Alþingis 

 

 

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta