Embætti skólameistara Fjölbrautaskóla Suðurlands
Umsóknarfrestur um stöðu skólameistara við Fjölbrautaskóla Suðurlands rann út þriðjudaginn 20. mars sl. Mennta- og menningarmálaráðuneyti bárust fimm umsóknir um stöðuna. Umsækjendur eru:
- Guðrún Ragnarsdóttir,
- Gylfi Þorkelsson,
- Jóhannes Ágústsson,
- Olga Lísa Garðarsdóttir og
- Þórunn Jóna Hauksdóttir.
Miðað er við að mennta- og menningarmálaráðherra skipi í stöðuna til fimm ára frá 1. ágúst nk., að fenginni umsögn hlutaðeigandi skólanefndar, sbr. 1. mgr. 6. gr. laga um framhaldsskóla, nr. 92/2008 og lög um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins nr. 70/1996, með síðari breytingum.