Embætti skólameistara Fjölbrautaskóla Suðurnesja
Umsóknarfrestur um stöðu skólameistara við Fjölbrautaskóla Suðurnesja rann út þriðjudaginn 20. mars sl. Mennta- og menningarmálaráðuneyti bárust þrjár umsóknir um stöðuna.
Umsækjendur eru:
- Anna Kristjana Eyfjörð Egilsdóttir,
- Jóhannes Ágústsson og
- Kristján Ásmundsson.
Miðað er við að mennta- og menningarmálaráðherra skipi í stöðuna til fimm ára frá 1. ágúst nk., að fenginni umsögn hlutaðeigandi skólanefndar, sbr. 1. mgr. 6. gr. laga um
framhaldsskóla, nr. 92/2008 og lög um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins nr. 70/1996, með síðari breytingum.