Styrkir til háskólanáms í Rússlandi
Stjórnvöld í Rússlandi bjóða fram tvo styrki handa Íslendingum til háskólanáms skólaárið 2012-2013
Stjórnvöld í Rússlandi bjóða fram tvo styrki handa Íslendingum til háskólanáms skólaárið 2012-2013. Í boði er einn styrkur á bakkalár- eða meistarastigi og annar til skemmri námsdvalar.
Nánari upplýsingar og umsóknareyðublöð er að finna á vef rússneska menntamálaráðuneytisins.
Umsóknum skal skila rafrænt en einnig þarf að prenta þær út og senda til mennta- og menningarmálaráðuneytisins, Sölvhólsgötu 4, 150 Reykjavík.
Umsóknarfrestur er til 27. apríl 2012.