Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra átti í dag fund með Nikolay Patrushev formanni þjóðaröryggisráðs Rússlands
![Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra ásamt Nikolay Patrushev, formanni þjóðaröryggisráðs Rússlands](/media/utanrikisraduneyti-media/media/Frettamyndir/Ossur-Skarphedinsson-og-Nikolay-Patrushev.jpg?proc=singleNewsItem)
Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra átti í dag fund með Nikolay Patrushev, formanni þjóðaröryggisráðs Rússlands, sem staddur er hér á landi í stuttri heimsókn. Á fundinum var meðal annars rætt ítarlega um málefni norðurslóða og gott samstarf ríkjanna á tvíhliða grunni, sem og innan Norðurskautsráðsins. Þá voru samskipti Rússlands og Atlantshafsbandalagsins til umræðu, auk málefna Miðausturlanda.
Formaður þjóðaröryggisráðsins heldur af landi brott nú síðdegis.