Hoppa yfir valmynd
12. apríl 2012 Matvælaráðuneytið

Konur með snjallar viðskiptahugmyndir fá styrki!

Hækkandi sól - Ein góð frétt á dag
Hækkandi sól - Ein góð frétt á dag

Velferðarráðuneytið veitti nýlega styrki til kvenna með góðar viðskiptahugmyndir. Alls voru veittir styrkir til 36 verkefna og nam heildarstyrkupphæðin alls 26 milljónum króna.

22 styrkir fóru til kvenna á höfuðborgarsvæðinu en 14 til kvenna á landsbyggðinni og eru styrkirnir veittir til markaðssetningar, vöruþróunar, launakostnaðar og ennfremur til gerðar viðskiptaáætlana.

Hæstu styrkina hlutu Icelandic Cinema online, 2.000.000 vegna vöruþróunar verkefnisins Icelandic film locations og Tungumál og menning, 1.600.000 vegna verkefnisins Lifandi tungumálakennsla.

Styrkir voru til fjölbreyttra verkefna og má þar nefna styrk vegna uppbyggingu kanínuræktar, til þarabaða á Reykhólum, vegna baðvörulínu, bílabingós, framleiðslu á duftkerjum, til framleiðslu jurtakryddsalts úr íslensku salti, handtuftaðra motta, markaðssetningu prjónaferða, snúningslaka, færanlegs skjólveggur, heilsukodda og ostagerðar.

Hér má sjá lista yfir styrkhafa ársins 2012

Hækkandi sól - Ein góð frétt á dag


Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta