Hoppa yfir valmynd
13. apríl 2012 Matvælaráðuneytið

Stjórn AGS lýkur reglubundnu eftirliti skv. reglugerð IV

Stjórn Alþjóðagjaldeyrissjóðsins (AGS) hefur lokið reglubundinni úttekt á íslensku efnahagslífi samkvæmt reglugerð fjögur (Article IV) og birti skýrslu þess efnis í gær.

Í skýrslunni kemur fram að Ísland sé hægt og bítandi að jafna sig eftir efnahagshrun. Landsframleiðsla hefur vaxið um rúm 3 prósent á árinu 2011, knúin af einkaneyslu og aukinni fjárfestingu. Dregið hefur jafnt og þétt úr atvinnuleysi, sem nú stendur í 7 prósent. Verðbólga er þó enn of mikil. Viðskiptajöfnuður helst jákvæður, en krónan hefur engu að síður veikst, að hluta vegna endurgreiðslu erlendra skulda einkageirans.

Jöfnuður í ríkisfjármálum nálgast, en hægar en búist var við í upphafi. Útgjöld voru meiri árið 2011 en áður var gert ráð fyrir og haldast þau að einhverju leyti árið 2012 og eitthvað lengur. AGS hvetur til þess að gripið verði til aðgerða upp á ½ prósent af landsframleiðslu í fjárlögum til þess að koma ríkisfjármálum aftur á upphaflega braut.

Þá telur sjóðurinn að stýrivextir þurfi að hækka vegna aukins verðbólguþrýstings og verðbólguvæntinga yfir markmiði Seðlabankans. Hækkandi vextir styðji einnig við afnám gjaldeyrishafta. Afnám hafta sé ein stærsta áskorun stjórnmálanna vegna umfangs svokallaðra aflandskróna og því þurfi að losa höftin hægt og varlega, með tilliti til styrks viðskiptajöfnuðar, gjaldeyrisforða og fjármálastöðugleika.

Mikill árangur hefur náðst í endurskipulagningu skulda heimila og fyrirtækja að mati AGS. Þrýstingur á frekari aðgerðir fyrir heimilin er enn mikill, en að mati sjóðsins gætu þær aðgerðir haft afleiðingar fyrir ríkissjóð og skuldahlutfall hins opinbera, sem enn er mjög hátt. Loks hvetur sjóðurinn til frekari aðgerða til að styrkja eftirlit með fjármálakerfinu og draga úr veikleikum þess.

Skýrsluna má lesa í heild sinni á heimasíðu Alþjóða gjaldeyrissjóðsins

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta