70 golfvalla landið Ísland
Erlendum kylfingum sem leika hér á Íslandi hefur fjölgað verulega á undanförnum árum og ljóst að íslenskir golfvellir í okkar sérstæða landslagi og einstöku birtu vekja mikinn áhuga og ánægju þeirra sem hér spila. Ísland hefur tvö undanfarin ár verið tilnefnt af golfblaðamönum í lokaúrslit um titilinn „ Besti nýi óþekkti golfáfangastaðurinn í heiminum“
Mikil umræða hefur verið um mikilvægi þess að fjárfesta í vöruþróun í ferðaþjónustu um allt land og þar sérstaklega verið litið til afþreyingar fyrir vaxandi fjölda gesta. Á Íslandi eru um 70 golfvellir,sem dreifast um allt landið. Hér er því nú þegar mikið framboð af þessari eftirsóttu afþreyingu og varan er tilbúin.
Samtökin GOLF ICELAND voru stofnuð 2008 af hópi golfklúbba og hópi ferðaþjónustufyrirtækja auk Golfsambands Íslands og Ferðamálastofu í þeim tilgangi að vinna að kynningu og markaðssetningu þessarar afþreyingar. Markaðurinn er stór og vaxandi. Um 50 milljónir kylfinga eru í heiminum þar af eru um 6 milljónir í Evrópu. Um 30% kylfinga fara árlega í golfferð utan heimalands. Þessir ferðamenn eru eftirsóttir enda eyða þeir allt að 100% meira en almennir ferðamenn á sínum ferðum.
Samtökin Golf Iceland standa fyrir málþingi um golf og ferðaþjónustu fimmtudaginn 26. apríl 2012 kl 13:30 á Hilton hóteli.
Á málþinginu verður farið nánar yfir þá möguleika sem eru til staðar fyrir okkur að ná meiri árangri og hvað frekar er hægt að gera í þeim tilgangi. Meðal fyrirlesara á málþinginu er Per Persson frá Golf Skåne/Svíþjóð. Hann hefur unnið að því frá 2003 að markaðssetja Svíþjóð sem „nýjan“ golfáfangastað. Per mun fara yfir hvernig golklúbbar og ferðaþjónustan í Svíþjóð hafa komið golfi á framfæri og nýtt þá afþreyingu sem aðdráttarafl.
Þá verður fjallað um hvað golfklúbbar geta gert betur til að laða til sín fleiri kylfinga og hvar skóinn kreppir í móttökuþættinum í ljósi reynslunnar.
Einnig verður farið yfir möguleika ferðaþjónustunnar til frekara samstarfs og nýtingar á þessari miklu fjárfestingu í afþreyingu um allt land.