Kynning á umsóknarferli hjá Sameinuðu þjóðunum
Ríflega 150 manns tók þátt í þremur kynningarfundum um umsóknarferli fyrir stöður hjá alþjóðastarfsliði SÞ sem fram fóru dagana 16. og 17. apríl. Tveir fundir fóru fram í utanríkisráðuneytinu og vegna mikillar aðsóknar var þriðja fundinum bætt á dagskrá og skráning á hann boðin öllum þeim sem ekki komust að á fyrri fundina tvo. Þriðji kynningarfundurinn fór fram í Ásbrú, fundarsal Bandalags Háskólamanna.
Hver fundur stóð í þrjár klukkustundir og fóru fulltrúar mannauðsskrifstofu SÞ í New York, Martha Helena Lopez og John Ericson, í gegnum gerð ferilskrár, útfyllingu umsóknareyðublaða og tilhögun atvinnuviðtala, auk þess sem þau sátu fyrir svörum í lok hvers fundar. Hér fyrir neðan má nálgast glærusýningu kynningarfundanna. Almenn skilyrði til umsókna hjá SÞ eru háskólamenntun, helst meistarapróf, og er krafist þess að umsækjendur tali ensku eða frönsku reiprennandi. Tungumálaþekking í öðrum tungumálum er kostur.
Sameinuðu þjóðirnar leita stöðugt að vel menntuðu og reynslumiklu fólki til starfa í alþjóðastarfsliðinu, m.a. til starfa sem sérfræðingar á skrifstofum stofnunarinnar og starfsstöðvum á vettvangi. Sótt er um störf hjá skrifstofu SÞ á heimasíðunni careers.un.org.
Glærusýning kynningarfundanna í þremur hlutum:
Almenn kynning
Hvernig á að sækja um
Tilhögun atvinnuviðtala