Hoppa yfir valmynd
25. apríl 2012 Matvælaráðuneytið

Sóknaráætlanir landshluta fá byr undir báða vængi

Hækkandi sól - Ein góð frétt á dag
Hækkandi sól - Ein góð frétt á dag

Markmiðið með sóknaráætlunum landshluta er að stuðla að umbótum í úthlutun almannafjár, framförum í samskiptum stjórnsýslustiga og nýsköpun í opinberri stjórnsýslu. Leiðin að þessum markmiðum er að endurskipuleggja fjárframlög ríkissjóðs til landshluta og um leið að einfalda úthlutun þeirra.
 

Hingað til hafa sérfræðingar allra ráðuneyta í gegnum stýrinet þeirra sinnt verkefninu. Nú hefur  Hólmfríður Sveinsdóttir, stjórnsýslufræðingur verið ráðin sem verkefnisstjóri verkefnisins. Hólmfríður er menntaður stjórnsýslufræðingur og býr að mikilli reynslu á sviði byggða- og sveitarstjórnarmála auk þess sem hún þekkir vel til í stjórnsýslunni.

Eitt megin verkefni Hólmfríðar verður að styðja við landshlutasamtökin við gerð sóknaráætlana landshluta  þar sem stefnumörkun og áherslur landshluta á sviði atvinnulífs og samfélags í hverjum landshluta koma fram. Verkefnisstjóri  mun vinna með öllum landshlutum og aðstoða þá við að ljúka við drög að sóknaráætlunum fyrir árslok 2012. Verkefnisstjóri ásamt fulltrúum úr stýrineti mun heimsækja alla landshluta fyrir sumarið og styðja við vinnu landshlutasamtakanna að gerð sóknaráætlana og framkvæmd.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta