Erlendir ferðamenn dvöldu að jafnaði 10 nætur á Íslandi árið 2011 og 13,7% þeirra heimsóttu Eyrarbakka!
Árið 2011 var algert metár í íslenskri ferðaþjónustu og í nýútgefinni talnasamantekt Ferðamálastofu, Ferðaþjónusta á Íslandi í tölum 2011, má finna kynstrin öll af upplýsingum um íslenska ferðaþjónustu á því herrans ári. Meðal efnis má nefna niðurstöður úr nýlegum könnunum Ferðamálastofu meðal erlendra ferðamanna og Íslendinga, auk samantekta byggða á ferðamannatalningum, gistináttatalningum og ferðaþjónustureikning Hagstofunnar.
Meðal efnis í talnasamantektinni er eftirfarandi:
- Hagtölur í íslenskri ferðaþjónustu; framleiðsluvirði, hlutur ferðaþjónustu í landsframleiðsu og
gjaldeyristekjum, skattar í ferðaþjónustu, störf í ferðaþjónustu og ferðaneysla.
- Erlendir ferðamenn til Íslands eftir komustöðum.
- Farþegar með skemmtiferðaskipum eftir höfnum.
- Erlendir ferðamenn til Íslands um Keflavíkurflugvöll eftir mánuðum og árstíðum.
- Helstu þjóðernin eftir árstíðum.
- Gistinætur erlendra ferðamanna og Íslendinga.
- Erlendir ferðamenn á Íslandi sumarið 2010; bakgrunnur þeirra, hvað fékk þá til að ferðast til Íslands, hvert
ferðuðust þeir, með hverjum, hvernig, hvar dvöldu þeir og hve lengi, hvaða afþreyingu greiddu þeir fyrir, hvað
fannst þeim minnisstæðast við ferðina, hvar fannst þeim styrkleikar íslenskrar ferðaþjónustu einkum liggja og
fannst þeim ferðin standa undir væntingum.
- Ferðalög Íslendinga árið 2011 í samanburði við ferðalög á árinu 2010; ferðuðust Íslendingar á árinu 2011 og þá
hvenær, hve lengi dvöldu þeir á ferðalögum, hvar gistu þeir, hvert ferðuðust þeir, hvaða afþreyingu greiddu þeir
fyrir. Hugað var að dagsferðum og þá hversu margar dagsferðir voru farnar og hvert, auk þess sem hugað var að
ferðaáformum Íslendinga á árinu 2012.