Viðbrögð við áliti
Umboðsmaður Alþingis hefur komist að þeirri niðurstöðu að umhverfisráðherra hafi ekki uppfyllt hæfiskröfur við staðfestingu og auglýsingu á tilteknum breytingum á skipulagsáætlunum Reykjavíkurborgar og höfuðborgarsvæðisins. Niðurstaðan byggir á fyrri aðkomu ráðherra að málunum í borgarstjórn Reykjavíkur. Í álitinu beinir umboðsmaður þeim tilmælum til umhverfisráðuneytisins að það taki umræddar afgreiðslur til endurskoðunar.
Ráðuneytið mun þegar í stað taka álitið til umfjöllunar og endurskoða fyrri afgreiðslu í ljósi athugasemda og ábendinga umboðsmanns og jafnframt hafa þær til hliðsjónar við afgreiðslu sambærilegra mála hér eftir.