Hoppa yfir valmynd
21. maí 2012 Matvælaráðuneytið

Iceland Unlimited ... takmarkalaus ánægja fyrir ALLA ferðamenn!

Hækkandi sól - Ein góð frétt á dag
Hækkandi sól - Ein góð frétt á dag

Það er mörg markaðssyllan í íslenskri ferðaþjónustu og fjölmörg framúrskarandi fyrirtæki sem sinna þörfum afmarkaðra markhópa.

Þau hjá Iceland Unlimited sérhæfa sig í að skipuleggja ferðir fyrir útlenda ferðamenn þar sem búið er að klæðskerasauma ferðina fyrir hvern og einn hóp. Ferðamennirnir eru sóttir út á flugvöll og þegar á hótelið er komið er haldinn fundur þar sem farið er yfir ferðaáætlunina, hver og einn dagur er teiknaður upp, búið er að ganga frá allri gistingu, bílarnir bíða klárir á hlaðinu og listinn yfir heilræði og ferða“tips“ er kílómeters langur. Síðan er haldið á vit ævintýranna og það er algerlega í valdi hvers ferðahóps hvort hann kýs að ferðast með eða án leiðsögumanns. Góðir hlutir spyrjast jafnan hratt út og á þessu stefnir í þreföldun á ferðum á vegum Iceland Unlimited.

Einn af markhópum Iceland Unlimited eru fatlaðir einstaklingar og reynslan sýnir og sannar að með góðri skipulagningu, kunnáttu og jákvæðu viðhorfi þá er illfinnanlegur sá farartálmi að hann geti stoppað Iceland Unlimited

Ísland er jú fyrir alla – og allir geta notið töfra Íslands!

Meira á vef Iceland Unlimited 

Hækkandi sól - Ein góð frétt á dag






Iceland Unlimited kynning íPrag

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum