Græn nýsköpun í ferðaþjónustu
Íshestar, Ferðaþjónusta bænda og Íslenskir fjallaleiðsögumenn voru á meðal þeirra fyrirtækja sem valin voru til að taka þátt í tilraunaverkefni á vegum Norrænu nýsköpunarmiðstöðvarinnar og ferðamálanefndar OECD um svokallaðan nýsköpunarradar í ferðaþjónustu með sérstökum ,,grænum áherslum".
Ráðgjafarfyrirtækið GEKON hélt vinnufundi með fyrirtækjunum og setti fram niðurstöður í samráði við þau.
Í þessari skýrslu má sjá nánari umfjöllun um verkefnið og helstu niðurstöður en fyrirtækin voru m.a. Austurríki, Portúgal, Danmörku, Finnlandi, Mexíkó, Svíþjóð, Rússlandi, Suður-Kóreu og Íslandi, eins og áður segir: