Morgunverðarfundur um aðgang útlendinga frá ríkjum utan EES að Íslandi
Aðgangur útlendinga frá ríkjum utan Evrópska efnahagssvæðisins að Íslandi verður til umfjöllunar á næsta fundi í fundaröð innanríkisráðuneytisins um mannréttindamál. Fundurinn verður haldinn í Iðnó í Reykjavík miðvikudaginn 30. maí kl. 9 til 10.30. Þetta er sjötti og síðasti fundurinn að sinni í fundaröð innanríkisráðuneytisins um hin ýmsu svið mannréttindamála.
Á fundinum segir Halla Gunnarsdóttir, aðstoðarmaður innanríkisráðherra, frá starfi starfshóps um málefni útlendinga utan EES sem innanríkisráðherra setti á fót í júlí á síðasta ári. Hópurinn hefur fjallað um aðgengi útlendinga utan EES að Íslandi, jafnt þeirra sem óska eftir dvöl á Íslandi og þeirra sem sækja um hæli. Að loknu erindi hennar verða pallborðsumræður.
Dagskrá verður sem hér segir:
9.00 - 9.10 Ávörp ráðherra
Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra
Guðbjartur Hannesson velferðarráðherra9.10 - 9.40 Halla Gunnarsdóttir, formaður starfshóps um málefni útlendinga utan EES
9.40 - 10.10 Pallborðsumræður
Í pallborði eiga sæti fulltrúar frá:
- Mannréttindaskrifstofu Íslands
- Útlendingastofnun
- Fjölmenningarsetri
- No borders
- Rauða krossi Íslands
- Samtökum kvenna af erlendum uppruna
- Sambandi íslenskra sveitarfélaga
10.10-10.30 Umræður og fyrirspurnir úr sal.
Innanríkisráðuneytið hóf fyrir áramót fundaröð um mannréttindamál í tengslum við mótun landsáætlunar í mannréttindum. Haldnir hafa verið fundir í hverjum mánuði og kastljósinu beint að ýmsum sviðum mannréttinda, svo sem tjáningarfrelsi og lýðræði, trúfrelsi, mannréttindum geðsjúkra og hatursáróðri. Fundaröðin er liður í viðleitni ráðuneytisins til að tryggja að stefnumótun í svo margþættum og mikilvægum málaflokki sem mannréttindi eru eigi sér stað í samstarfi og í beinum tengslum við hagsmunaaðila, fræðasamfélag og almenning.