Hoppa yfir valmynd
29. maí 2012 Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið

Vatnsmiðlun og lífið í hádegisfyrirlestri

Geitabergsvatn.
Geitabergsvatn.

Umhverfisráðuneytið, Umhverfisstofnun, Veðurstofa Íslands, Landgræðsla ríkisins og Íslenska vatnafræðinefndin bjóða til hádegisfyrirlesturs undir yfirskriftinni „Vatnsmiðlun og lífið“ þar sem Ólafur Arnalds, prófessor við Landbúnaðarháskóla Íslands fjallar um samspil vatns og jarðvegs.

Erindið verður haldið í fyrirlestrarsal Þjóðminjasafnsins, fimmtudaginn 7. júní og hefst kl. 12:10.

Mold er mikilvægur liður í hringrás vatnsins á jörðinni. Jarðvegsvernd er því sérlega þýðingarmikil en Íslendingar eru komnir skammt á þeirri braut að huga að mold í tengslum við vatnsvernd.

Að loknu erindi gefst tími til umræðna en fyrirlestrinum lýkur fyrir kl. 13:00.

Aðgangur er ókeypis og eru allir velkomnir.

Fyrirlesturinn er annar í röð hádegiserinda í fyrirlestrarröðinni „Má bjóða þér vatn?“ sem efnt er til í tilefni af evrópsku ári vatnsins. Í þeim verður fjallað um vatn frá ólíkum sjónarhornum og er gert ráð fyrir að þau verði með reglulegu millibili út árið.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta