Íslendingar og Bretar undirrita viljayfirlýsingu um samstarf í orkumálum
Oddný G Harðardóttir, iðnaðarráðherra og Charles Hendry, orkumálaráðherra Bretlands undirrituðu í dag í Hellisheiðarvirkjun viljayfirlýsingu um aukið samstarf ríkjanna á sviði orkumála og er sérstök áhersla lögð á hagnýtingu endurnýjanlegra orkugjafa.
Í viljayfirlýsingunni eru tilgreind sérstaklega fjögur svið sem ríkin leggja áherslu á:
- Miðlun þekkingar og samvinna varðandi beislun jarðhita og uppbyggingu hitaveitna í Bretlandi.
- Möguleikinn á lagningu rafmagnsstrengs milli Íslands og Bretlands skal kannaður með jákvæðum augum.
- Vilji til að aðstoða þróunarlönd við að hagnýta endurnýjanlegar orkuauðlindir sínar. Sérstök áhersla skal lögð á ríki í Austur-Afríku.
- Miðlun á þekkingu varðandi uppbyggingu á olíu- og gasiðnaði.
Viljayfirlýsingin er á meðfylgjandi PDF skjali
Á fimmtudagsmorgun mun breski ráðherran m.a. flytja ávarp á ráðstefnu sem haldin er í Arionbanka og ber yfirskriftina „Orkumál Evrópu - tækifæri fyrir íslensk fyrirtæki?“ Að ráðstefnunni standa UK Trade & Investment, Arion banki og Orkustofnun. Fjölmiðlar eru hjartanlega velkomnir