Akstursgjald ríkisstarfsmanna - auglýsing nr. 1/2012 - fallin úr gildi
Ferðakostnaðarnefnd hefur ákveðið akstursgjald í aksturssamningum ríkisstarfsmanna og ríkisstofnana sem hér segir:
Almennt gjald
- Fyrstu 10.000 km, kr. 117,50 pr. km
- Frá 10.000 til 20.000 km, kr. 106,00 pr. km
- Umfram 20.000 km, kr. 94,00 pr. km
Við útreikning á sérstöku gjaldi skal bæta 15% álagi á almenna gjaldið og við útreikning á torfærugjaldi skal bæta 45% álagi á almenna gjaldið.
Akstursgjald þetta gildir frá og með 1. júní 2012. Jafnframt fellur úr gildi auglýsing nr. 3/2011 dagsett 29. september 2011.
Vakin er athygli á því að auglýsingar ferðakostnaðarnefndar eru birtar á vefsíðu fjármálaráðuneytisins. Þar er auk þess að finna reglur nefndarinnar um greiðslu dagpeninga erlendis og greinargerð um forsendur útreikninga akstursgjalds og dagpeninga. Veffangið er: fjarmalaraduneyti.is/ferdakostnadur.
Ferðakostnaðarnefnd