Niðurstöður um úthlutun WTO tollkvóta 2012-2013
Niðurstöður um úthlutun á WTO tollkvóta
Þriðjudaginn 14. júní sl. rann út umsóknarfrestur um tollkvóta vegna innflutnings á svína- kinda- geita- og alifuglakjöti, unnum kjötvörum, smjöri og ostum fyrir tímabilið júlí 2012 – júní 2013.
Samtals bárust umsóknir frá 16 aðilum um tollkvótann. Til útboðs kom á tollkvótum á svína- og alifuglakjöti, unnum kjötvörum og ostum þar sem umsótt magn var meira en það magn sem í boði var.
Samtals bárust þrettán gild tilboð í tollkvótann.
Tvö tilboð bárust um innflutning á svínakjöti, samtals 22.500 kg á meðalverðinu 4 kr./kg. Hæsta boð var 50 kr./kg en lægsta boð var 0 kr./kg. Tilboðunum var tekið.
Ein umsókn barst um innflutning á kinda- eða geitakjöti, samtals 50.000 kg.
Sjö tilboð bárust um innflutning á kjöti af alifuglum, samtals 229.000 kg á meðalverðinu 195 kr./kg. Hæsta boð var 701 kr./kg en lægsta boð var 0 kr./kg. Tilboðum var tekið frá þremur fyrirtækjum um innflutning á 59.000 kg á meðalverðinu 322 kr./kg.
Þrjú tilboð bárust um innflutning í annað kjöt, samtals 10.000 kg á meðalverðinu 53 kr./kg. Hæsta boð var 200 kr./kg og lægst var boðið 0 kr./kg. Tilboðunum var tekið.
Níu tilboð bárust í tollkvóta vegna innflutnings á unnum kjötvörum, samtals 204.500 kg. á meðalverðinu 122 kr./kg. Hæsta boð var 501 kr./kg en lægsta boð var 0 kr./kg. Tilboðum var tekið frá átta fyrirtækjum um innflutning á 86.000 kg á meðalverðinu 264 kr./kg.
Átta tilboð bárust í tollkvóta vegna innflutnings á ostum, samtals 377.000 kg á meðalverðinu 95 kr./kg. Hæsta boð var 302 kr./kg en lægsta boð var 1 kr./kg. Tilboðum var tekið frá á sjö fyrirtækjum um innflutning á 119.000 kg á meðalverðinu 204 kr./kg.
Ein umsókn barst um innflutning á smjöri samtals 5.000 kg.
Að tillögu ráðgjafanefndar um inn- og útflutning landbúnaðarvara hefur sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytið úthlutað tollkvótum til eftirtalinna fyrirtækja á grundvelli tilboða og/eða umsókna þeirra:
Svínakjöt fyrir tímabilið júlí 2012 – júní 2013
Magn (kg) | Tilboðsgjafi |
20.000 | Íslenskar matvörur ehf |
2.500 | Karl K. Karlsson ehf |
Kjöt af kinda- og geitakjöti fyrir tímabilið júlí 2012 – júní 2013
Magn (kg) | Tilboðsgjafi |
50.000 | Íslenskar matvörur ehf. |
Kjöt af alifuglum fyrir tímabilið júlí 2012 – júní 2013
Magn (kg) | Tilboðsgjafi |
54.500 | Aðföng hf. |
2.500 | Perlukaup ehf |
2.000 | Sælkeradreifing ehf |
Annað kjöt fyrir tímabilið júlí 2012 – júní 2013
Magn (kg) | Tilboðsgjafi |
3.000 | Íslenskar matvörur ehf. |
5.000 | Perlukaup ehf. |
2.000 | Sælkeradreifing ehf |
Unnar kjötvörur fyrir tímabilið júlí 2012 – júní 2013
Magn (kg) | Tilboðsgjafi |
1.000 | Innnes ehf |
5.000 | Íslenskar matvörur ehf |
7.000 | Kaupás hf |
12.000 | KFC ehf |
20.000 | Nautica ehf |
20.000 | Pizza Pizza ehf. |
6.500 | Sólstjarnan ehf |
14.500 | Sælkeradreifing ehf |
Ostur fyrir tímabilið júlí 2012 – júní 2013
Magn (kg) | Tilboðsgjafi |
25.000 | Aðföng hf |
20.000 | Innnes ehf |
1.000 | Íslenskar matvörur ehf |
2.000 | Kaupás hf |
46.000 | Mjólkursamsalan ehf |
5.000 | Nautica ehf |
20.000 | Sólstjarnan ehf |
Smjör fyrir tímabilið júlí 2012 – júní 2013
Magn (kg) | Tilboðsgjafi |
5.000 | Íslenskar matvörur ehf. |
Reykjavík, 18. júní 2012
Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytinu