Staðall um launajafnrétti – opinn kynningarfundur á þriðjudag
Staðall um launajafnrétti verður kynntur á morgunverðarfundi á Grand Hótel Reykjavík þriðjudaginn 19.júní kl. 8-10.
Velferðarráðuneytið, Alþýðusamband Íslands (ASÍ) og Samtök atvinnulífsins (SA) hafa frá því í árslok 2008 haft forgöngu um gerð staðals um launajafnrétti kynjanna í samræmi við bókun aðila vinnumarkaðarins við gerð kjarasamninga í febrúar 2008 og bráðabirgðaákvæði jafnréttislaga nr. 10/2008. Verkið hefur verið unnið undir leiðsögn Staðlaráðs Íslands og með aðkomu fjölmargra aðila.
Frumvarp um jafnlaunastaðal er tilbúið til kynningar og fer nú í hefðbundið umsagnarferli samkvæmt lögum um Staðlaráð Íslands. Umsagnarferlinu lýkur 20. september næstkomandi. Staðallinn verður aðgengilegur þeim sem vilja kynna sér hann á vef Staðlaráðs.
Ávörp á kynningarfundinum flytja:
- Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra
- Gylfi Arnbjörnsson forseti ASÍ
- Hannes Sigurðsson aðstoðarframkvæmdastjóri SA
- Jafnlaunastaðallinn: Öguð vinnubrögð við stjórnun launamála. Hildur Jónsdóttir formaður tækninefndar um jafnlaunastaðal
- Flokkun starfa: Birgir Björn Sigurjónsson hagfræðingur
- Launagreiningar: Anna Borgþórsdóttir Olsen hagfræðingur
- Íslenskur og evrópskur réttur á sviði launajafnréttis: Elsa S. Þorkelsdóttir lögfræðingur
- Umsagnarferlið og úrvinnsla: Guðrún Rögnvaldardóttir framkvæmdastjóri Staðlaráðs
- Guðbjartur Hannesson velferðarráðherra
- Fyrirspurnir.
Allir velkomnir. Ekkert þátttökugjald.