Innritun 10. bekkinga í framhaldsskóla haustið 2012
Hátt hlutfall 10. bekkinga fá skólavist samkvæmt fyrsta eða öðru vali.
Innritun 10. bekkinga í framhaldsskóla á haustönn 2012 er nú lokið. Hlutfall þeirra sem fengu inni í öðrum hvorum þeim skóla, sem þeir sóttu um skólavist í, er 97,6%.
103 nemendur fengu úthlutað námsplássi í þriðja skóla, þ.e. skóla sem þeir sóttu ekki um í, samkvæmt reglum þar að lútandi. Í þeim er m.a. kveðið á um að reynt er að finna skóla sem er næst heimili nemandans og hefur í boði nám, sem er hliðstætt því sem sótt var um.
- Nánari upplýsingar og niðurstöður innritunar eru birtar á menntagatt.is.
Val 1 | 3661 | 85,60% |
Val 2 | 511 | 12% |
Val 3 | 103 | 2,40% |
Alls | 4275 | 100,00% |