Hoppa yfir valmynd
21. júní 2012 Matvælaráðuneytið

Málþing um auðlindastefnu

Malthing-22.-juni-2012
Malthing-22.-juni-2012

Nefnd forsætisráðherra um auðlindastefnu boðar til málþings í Hörpu, föstudaginn 22. júní frá kl. 9 til 12 í salnum Rímu.

Á málþinginu mun Arnar Guðmundsson formaður nefndarinnar kynna drög að skýrslu nefndarinnar og helstu tillögur um auðlindastefnu.

Sérstakur gestur málþingsins og fyrirlesari er Philip J. Daniel, yfirmaður skattastefnusviðs Alþjóða gjaldeyrissjóðins og sérfræðingur í skattlagningu auðlinda.

Dr. Daði Már Kristófersson, dósent  í auðlindahagfræði við hagfræðideild Háskóla Íslands og hann mun gefa yfirlit yfir helstu sjónarmið sem taka þarf tillit til við gerð auðlindastefnu og rýna í tillögu auðlindastefnunefndarinnar.

Þingflokkum hefur verið boðið að halda stutta framsögu um stefnu síns stjórnmálaflokks í auðlindamálum.

Að loknum framsögum verða pallborðsumræður með þátttöku framsögumanna.

Fundarstjóri er dr. Aðalheiður Jóhannsdóttir, prófessor við lagadeild Háskóla Íslands.

Dagskrá ráðstefnunnar í Hörpu, föstudaginn 22. júní

9:00 Arnar Guðmundsson, form. Auðlindastefnunefndar kynnir skýrsluna
9:30 Dr. Daði Már Kristófersson rýnir í tillögur nefndarinnar
10:00 Kaffihlé
10:15 Philip Daniel fjallar um leiðir við skattlagningu auðlinda
10:55 Fulltrúar þingflokka fjalla um málið í 3-5 mín hver.
11:30 Spurningar og umræður

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta