Hoppa yfir valmynd
21. júní 2012 Mennta- og barnamálaráðuneytið

Nám er vinnandi vegur skilar góðum árangri

Tæplega 1.500 nemendur innrituðust í nám á framhaldsskólastigi haustið 2011 undir formerkjum átaksins Nám er vinnandi vegur.

Tæplega 1.500 nemendur innrituðust í nám á framhaldsskólastigi haustið 2011 undir formerkjum átaksins Nám er vinnandi vegur. Það byggist m.a. á markmiði í stefnumörkuninni Ísland 2020 um að lækka hlutfall Íslendinga á aldrinum 20-66 ára sem ekki hafa hlotið formlega framhaldsmenntun. Nemendahópur átaksins er tvískiptur, annars vegar hópur nemenda sem innritaðist í nám samhliða því að þiggja bætur hjá Vinnumálastofnun og hins vegar hópur nemenda, sem framhaldsskólarnir innrituðu til viðbótar við hefðbundna ársnemendur og eru á aldrinum 18-24 ára. Talsvert brotthvarf varð úr nemendahópnum á haustönn eða 21,4%.
Samhliða átakinu var efld náms- og starfsráðgjöf í þeim framhaldsskólum, sem innrituðu nemendur vegna átaksins og var þessum nemendahópi fylgt eftir sérstaklega með það fyrir augum að sporna gegn brotthvarfi. Árangurinn hefur komið í ljós því verulega dró úr brotthvarfi meðal nemenda á vorönn og var það um 11,5%. Það hafði því lækkað um tæplega 10% og var því nánast helmingi minna en á haustönn.
Aðrar jákvæðar niðurstöður eru að alls hafa 7,83% nemenda átaksins lokið námi sínu, en 116 nemendur brautskráðust á skólaárinu 2011-2012 ýmist af starfsnáms- eða bóknámsbrautum. Á komandi skólaári verður áfram byggt á góðri samvinnu náms- og starfsráðgjafa, nemenda, skóla og stofnana til að styrkja og viðhalda þeim árangri, sem náðst hefur í átakinu.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta