Efnahags- og viðskiptaráðherra á þingmannafundi Evrópuráðsins 25. - 29. júní
Á þingmannafundi Evrópuráðsins sem stendur yfir í Strassborg dagana 25. - 29. þ.m. tekur Steingrímur J. Sigfússon efnahags- og viðskiptaráðherra þátt í sérstakri umræðu 26. júní um banka- og efnahagskreppuna í Evrópu. Fjallar hann um stefnumörkun og ráðstafanir sem gripið hefur verið til hér á landi til að bregðast við fjármálahruninu og árangur í þeim efnum. Í umræðunni í Evrópuráðinu verður sjónum m.a. beint að því hvort í niðurskurði ríkisútgjalda felist ógn gagnvart lýðræðinu og félagslegum réttindum og hvort hagsmunir þeirrar kynslóðar sem nú er að vaxa úr grasi verði fyrir borð bornir.