Styrkir til starfsmenntanáms í Svíþjóð 2012-2013
Sænsk stjórnvöld veita árlega styrki til Íslendinga til starfsmenntanáms í Svíþjóð.
Sænsk stjórnvöld veita árlega styrki til Íslendinga til starfsmenntanáms í Svíþjóð. Styrkirnir eru
einkum ætlaðir til framhaldsnáms eftir lokapróf í framhaldsskóla eða hliðstæðs náms, til undirbúnings
kennslu í starfsmenntaskólum eða framhaldsnáms starfsmenntakennara, svo og ýmiss konar starfsmenntunar
sem ekki er unnt að afla á Íslandi.
- Umsókn um styrk er send til mennta- og menningarmálaráðuneytis á sérstöku eyðublaði.
- Nánari upplýsingar veitir Ólafur Grétar Kristjánsson í síma 545 9500 eða í tölvupósti á [email protected].
- Umsóknarfrestur er til 10. ágúst 2012.
- Eyðublað