Lærum hvert af öðru - virkjum grunnþættina
Á málþinginu verður fjallað um innleiðingu grunnþáttanna í skólastarf og þar gefst tækifæri til að miðla hugmyndum og reynslu milli skóla og skólastiga.
Með útgáfu nýrrar aðalnámskrár leik-, grunn- og framhaldsskóla er brotið blað í íslensku skólastarfi. Áherslan er færð á nemandann og hæfni hans til að takast á við áskoranir daglegs lífs, starfsumhverfis og næsta skólastigs. Nám í skóla felur ekki einungis í sér aukna þekkingu, leikni og hæfni í mismunandi námsgreinum heldur stuðlar jafnframt að alhliða þroska allra nemenda og virkri þátttöku þeirra í lýðræðisþjóðfélagi. Liður í því er innleiðing grunnþátta sem eru læsi, sjálfbærni, heilbrigði og velferð, lýðræði og mannréttindi, jafnrétti og sköpun.
Í tilefni af því heldur mennta- og menningarmálaráðuneyti í samstarfi við Samband íslenskra sveitarfélaga og Kennarasamband Íslands málþingið: Lærum hvert af öðru – virkjum grunnþættina í Flensborgarskólanum í Hafnarfirði 31. ágúst nk. Erindi og kveikjur í upphafi þings verða send út samtímis á vef og í kjölfarið haldnar málstofur. Vefur málþingsins.
- Málþingið er ætlað þeim er áhuga hafa á virkjun grunnþátta í skólastarfi.
- Þátttaka er ókeypis og eru allir velkomnir meðan húsrúm leyfir