Hoppa yfir valmynd
12. júlí 2012 Heilbrigðisráðuneytið

Meðferð MS-lyfsins Gilenya samþykkt

Sjúkratryggingar Íslands
Sjúkratryggingar Íslands

Sjúkratryggingar Íslands hafa veitt heimild fyrir greiðsluþátttöku sjúkratrygginga í MS lyfinu Gilenya og verður meðferð veitt þeim MS sjúklingum sem þegar hafa reynt MS lyfið Tsyabri og orðið að hætta notkun þess. Einnig hefur verið ákveðið að Gilenya-meðferð verði veitt þeim MS-sjúklingum sem eiga eftir að greinast með alvarlegustu einkenni MS-sjúkdómsins. Fallist var á beiðni Landspítala frá 28. júní síðastliðnum um að Sjúkratryggingar Íslands veittu umsókn um innleiðingu lyfsins flýtimeðferð.

Þar sem Gilenya er afar vandmeðfarið lyf mun meðferð með því verða undir ströngu eftirliti hjá LSH með sérstakri vöktun sjúklinga, ekki síst í upphafi meðferðar. Í byrjun munu  5-10 sjúklingar hefja meðferð á Gilenya, en áætlað er að fljótlega muni 20-25 bætast í hópinn. SÍ og LSH stefna í framhaldi að heildarendurskoðun og samræmingu klínískra leiðbeininga vegna MS-lyfja. Gert er ráð fyrir að þeirri endurskoðun verði lokið um næstu áramót. Næsta endurskoðun er síðan áætluð að þremur árum liðnum, nema nýjar upplýsingar komi fram sem gera nauðsynlegt að flýta henni.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta