Hoppa yfir valmynd
9. ágúst 2012 Mennta- og barnamálaráðuneytið

Styrkir úr Æskulýðssjóði

Mennta og menningarmálamálaráðuneyti auglýsir eftir umsóknum um styrki úr Æskulýðssjóði sem starfar samkvæmt lögum nr. 70/2007 og reglum nr. 60/2008.

Mennta og menningarmálamálaráðuneyti auglýsir eftir umsóknum um styrki úr Æskulýðssjóði sem starfar samkvæmt lögum nr. 70/2007 og reglum nr. 60/2008.

Hlutverk Æskulýðssjóðs er að styrkja eftirtalin verkefni á vegum æskulýðsfélaga og æskulýðssamtaka:

  1. Sérstök verkefni sem unnin eru fyrir börn og ungmenni og/eða með virkri þátttöku þeirra.
  2. Þjálfun forystufólks, leiðbeinenda og sjálfboðaliða.
  3. Nýjungar og  þróunarverkefni.
  4. Samstarfsverkefni æskulýðsfélaga og æskulýðssamtaka.

Við úthlutun úr Æskulýðssjóði fyrir árið 2012 verður lögð áhersla á umsóknir frá æskulýðsfélögum og æskulýðssamtökum um verkefni er vinna gegn einelti, fræðslu um mannréttindi, þjálfun þeirra er vinna með börnum og ungmennum í félagsstarfi og á samstarfsverkefni æskulýðsfélaga og æskulýðssamtaka.
    
Hvorki er heimilt að styrkja árvissa né fasta viðburði í félagsstarfi svo sem þing, mót eða þess háttar viðburði né ferðir hópa.
    
Mennta- og menningarmálaráðherra úthlutar styrkjum úr Æskulýðssjóði að fengnum tillögum stjórnar Æskulýðssjóðs.
    
Umsóknarfrestur í Æskulýðssjóð er fjórum sinnum á ári, 1. febrúar, 1. apríl, 1. september og  1. nóvember og er umsóknarfrestur auglýstur hverju sinni.
    

Í umsókn til Æskulýðssjóðs skulu koma fram upplýsingar um:

  • nafn æskulýðsfélags eða æskulýðssamtaka
  • nafn og heimilisfang umsækjanda
  • heiti, lýsing og markmið verkefnis, ásamt kostnaðar- og tímaáætlun
  • áætlaðan fjölda þátttakenda
  • samstarfsaðila eftir því sem við á
  • kennitölu og númer bankareiknings þess er styrkurinn á að leggjast inn á ef viðkomandi hefur fengið úthlutað styrk.

    
Vakin er sérstök athygli á að umsækjendum er gert að sækja um á rafrænu formi á umsóknavef Stjórnarráðsins á vefslóðinni minarsidur.stjr.is Aðgangur er veittur á kennitölu umsækjanda (ekki kennitölu æskulýðsfélags eða æskulýðssamtaka) og verður lykilorð sent viðkomandi á netfang sem hann gefur upp við nýskráningu. Lykilorðinu má breyta eftir innskráningu með því að opna Mínar stillingar.
    

  • Umsækjendur skrá sig inn með kennitölu og lykilorði og velja menntamálaráðuneytið undir flipanum Umsóknir. Þar er umsóknareyðublað fyrir Æskulýðssjóð.
  • Svæði merkt rauðri stjörnu verður að fylla út.
  • Umsækjendur geta fylgst með afgreiðslu umsókna sinna með því skrá sig inn á umsóknavefinn.

Frekari upplýsingar um Æskulýðssjóð veitir Valgerður Þórunn Bjarnadóttir í síma 545 9500 eða í tölvupósti á [email protected]

  • Umsóknarfrestur er til og með 1. september 2012.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta