Embætti skólameistara Framhaldsskólans á Húsavík
Umsóknarfrestur um stöðu skólameistara við Framhaldsskólans á Húsavík rann út föstudaginn 17. ágúst sl. Mennta- og menningarmálaráðuneyti bárust tvær umsóknir um stöðuna.
Umsóknarfrestur um stöðu skólameistara við Framhaldsskólans á Húsavík rann út föstudaginn 17. ágúst sl. Mennta- og menningarmálaráðuneyti bárust tvær umsóknir um stöðuna.
Umsækjendur eru:
- Dóra Ármannsdóttir og
- Guðrún Björg Aðalsteinsdóttir.
Miðað er við að mennta- og menningarmálaráðherra skipi í stöðuna til fimm ára frá 1. september nk., að fenginni umsögn hlutaðeigandi skólanefndar, sbr. 1. mgr. 6. gr. laga um framhaldsskóla, nr. 92/2008 og lög um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins nr. 70/1996, með síðari breytingum.