Utankjörfundaratkvæðagreiðsla erlendis vegna þjóðaratkvæðagreiðslu um tillögur stjórnlagaráðs 20. október 2012
Utankjörfundaratkvæðagreiðsla erlendis, vegna þjóðaratkvæðagreiðslu um tillögur stjórnlagaráðs sem fer fram 20. október 2012, hefst 26.ágúst n.k. og fer fram í öllum sendiráðum Íslands erlendis og aðalræðisskrifstofum Íslands í New York, Winnipeg og Þórshöfn í Færeyjum. Einnig er unnt að kjósa utan kjörfundar eftir samkomulagi hjá kjörræðismönnum Íslands erlendis, samanber meðfylgjandi lista. Búist er við því að kosið verði á u.þ.b. 235 stöðum í 84 löndum. Væntanlegum kjósendum er vinsamlegast bent á að hafa samband við ræðismenn áður en þeir koma til að kjósa.
Hagnýtar upplýsingar um kosningarnar er að finna á vefsetrinu: www.kosning.is
Athygli kjósenda er ennfremur vakin á því, að þeim ber sjálfum að póstleggja atkvæði sín eða koma þeim á annan hátt í tæka tíð til viðkomandi kjörstjórnar á Íslandi.