Mennta- og menningarmálaráðherra og velferðarráðherra tóku á móti Ólympíuförunum
Mikið um dýrðir í Flugstöð Leifs Eiríkssonar þegar þátttakendur á Ólympíumóti fatlaðra komu heim
Mikið var um dýrðir í Flugstöð Leifs Eiríkssonar þegar þátttakendur á Ólympíumóti fatlaðra komu heim frá London í gær. Katrín Jakobsdóttir mennta- og menningarmálaráðherra og Guðbjartur Hannesson velferðarráðherra tóku á móti þeim ásamt forystumönnum í íþróttahreyfingunni og aðstandendum íþróttafólksins. Síðar um daginn hélt ríkisstjórnin móttöku fyrir hópinn og færði Íþróttasambandi fatlaðra fjórar milljónir króna að gjöf í viðurkenningarskyni fyrir glæsileg afrek íslensku þátttakendanna á Ólympíumótinu.