Dagpeningar ríkisstarfsmanna á ferðalögum innanlands - auglýsing nr. 3/2012
Ferðakostnaðarnefnd hefur ákveðið dagpeninga til greiðslu gisti- og fæðiskostnaðar ríkisstarfsmanna á ferðalögum innanlands á vegum ríkisins sem hér segir:
- Gisting og fæði í einn sólarhring, kr. 22.070
- Gisting í einn sólarhring, kr. 12.150
- Fæði hvern heilan dag, minnst 10 tíma ferðalag, kr. 9.920
- Fæði í hálfan dag, minnst 6 tíma ferðalag, kr. 4.960
Dagpeningar þessir gilda frá og með 1. október 2012. Jafnframt fellur úr gildi auglýsing nr. 2/2012 dags. 1. júní 2012.
Í gildi eru hagstæðir rammasamningar Ríkiskaupa við hótel og gistihús um gistingu og veitingar fyrir ríkisstarfsmenn á ferðalögum innanlands. Nánari upplýsingar um samningana er að finna á vef Ríkiskaupa, www.rikiskaup.is, með aðgangsupplýsingum sem stofnunin veitir, [email protected].
Nefndin fer þess á leit við ráðuneyti og stofnanir að viðmiðunarfjárhæðir um greiðslur dagpeninga og rammasamningar um gistingu og veitingar verði kynntir starfsfólki.
Vakin er athygli á því að auglýsing ferðakostnaðarnefndar um dagpeninga er á vefsíðu fjármálaráðuneytisins og er veffangið eftirfarandi: www.fjarmalaraduneyti.is/ferdakostnadur.
Ferðakostnaðarnefnd