Hoppa yfir valmynd
3. október 2012 Dómsmálaráðuneytið

Utankjörfundaratkvæðagreiðsla á sjúkrahúsum, dvalarheimilum aldraðra o.fl. í Reykjavík

Kjósanda, sem er til meðferðar á sjúkrahúsi eða vistmaður þar, á dvalarheimili aldraðra og stofnun fyrir fatlaða, er heimilt að greiða atkvæði á stofnuninni. Með sama hætti fer um fangelsi og vistmenn þar. Slík atkvæðagreiðsla skal fara fram á þeim tíma sem kjörstjóri ákveður, á sjúkrahúsi sem næst kjördegi, að höfðu samráði við stjórn stofnunar.

Hér að neðan eru upplýsingar um tímasetningar vegna utankjörfundaratkvæðagreiðslu á sjúkrahúsum, dvalarheimilum aldraðra o.fl. á vegum sýslumannsembættisins í Reykjavík.

  • Droplaugarstaðir við Snorrabraut - miðvikudaginn 10. október nk., kl. 15-17.
  • Seljahlíð, Hjallaseli 55 - miðvikudaginn 10. október nk., kl. 15:30- 17:30. 
  • Hlaðgerðarkot - fimmtudaginn 11. október nk., kl. 15:30-17:30.
  • Landspítalinn Háskólasjúkrahús Landakot - fimmtudaginn 11. október nk., kl. 15-17.
  • Eir í Grafarvogi - föstudaginn 12. október nk., kl. 13-16. 
  • Hrafnista - laugardaginn 13. október nk., kl. 11-14.
  • Dvalar- og hjúkrunarheimilið Grund - laugardaginn 13. október nk., kl. 11-15. 
  • Mörkin - laugardaginn 13. október nk., kl. 11-14.
  • Hjúkrunarheimilið Sóltún - mánudaginn 15. október nk., kl. 13-14:30. 
  • Kleppsspítali - mánudaginn 15. október nk., kl. 15-16.
  • Hegningarhúsið við Skólavörðustíg - mánudaginn 15. október nk., kl. 15:30-16:30. 
  • Skjól við Kleppsveg - þriðjudaginn 16. október nk., kl. 13-15.
  • Skógarbær við Árskóga - þriðjudaginn 16. október nk., kl. 15:30 – 17:30.
  • Landspítalinn Háskólasjúkrahús Fossvogi / Grensásdeild - fimmtudaginn 18. október nk., kl. 13-16 (Fossvogur) og 17-18 (Grensás) .
  • Landspítalinn Háskólasjúkrahús Hringbraut - föstudaginn 19. október nk., kl. 14-17.

Sjá einnig upplýsingar um atkvæðagreiðslu utan kjörfundar hjá sýslumannsembættum hér á vef sýslumanna, syslumenn.is.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta