Áætluð framlög úr Jöfnunarsjóði sveitarfélaga á árinu 2013
Fyrir liggja drög að áætlaðri úthlutun framlaga vegna sérþarfa fatlaðra nemenda á árinu 2013. Áætlunin sem nemur samtals 1.751,5 m.kr. er gerð á grundvelli ákvæða í 4. gr. reglugerðar, nr. 351/2002, um jöfnunarframlög Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga til reksturs grunnskóla. Sá fyrirvari er gerður á áætlaðri úthlutun framlaganna að mati á umsóknum vegna nýrra nemenda er ekki að fullu lokið. Endurskoðuð áætlun um úthlutun framlaganna verður birt þegar því mati er lokið.