Reglugerðir fyrir allar löggiltar heilbrigðisstéttir
Þann 1. janúar næstkomandi tekur gildi ný heildarlöggjöf um heilbrigðisstarfsmenn sem samþykkt var á Alþingi síðastliðið vor. Þar með falla niður lög og reglugerðir sem gilt hafa um einstakar heilbrigðisstéttir en í þeirra stað verða settar reglugerðir um hverja stétt á grundvelli nýju löggjafarinnar. Reglugerðirnar eru birtar hér til kynningar.
Reglugerðirnar hafa verið unnar í velferðarráðuneytinu í samstarfi við Embætti landlæknis. Þær eru að verulegu leyti byggðar á gildandi lögum og reglugerðum um heilbrigðisstéttir en eru jafnframt lagaðar að ákvæðum nýrra laga um heilbrigðisstarfsmenn nr. 34/2012.
Uppbygging reglugerðanna um stéttirnar þrjátíu og þrjár er svipuð í meginatriðum. Í fyrsta kafla þeirra eru almenn ákvæði um starfsleyfi og í öðrum kafla er fjallað um starfsleyfið, skilyrði fyrir veitingu þess og kröfur um umsagnir vegna útgáfu þeirra. Í þriðja kafla þeirra reglugerða sem einungis kveða á um almennt starfsleyfi eru ákvæði um réttindi og skyldur viðkomandi heilbrigðisstétta og eru þau samhljóða ákvæðum laganna um heilbrigðisstarfsmenn. Í þriðja kafla þeirra reglugerða sem fjalla um veitingu sérfræðileyfis eru tilgreind ákvæði og skilyrði fyrir veitingu slíkra leyfa. Ein ný stétt bætist í hóp þeirra stétta sem sótt geta um sérfræðileyfi en það eru ljósmæður sem geta eftir setningu reglugerðar sótt um slíkt leyfi.
Loks er í reglugerðunum sérstakur kafli með ákvæðum um gjaldtöku vegna umsókna um starfsleyfi og sérfræðileyfi. Er þar um að ræða gjald fyrir hvers konar umsýslu Embættis landlæknis vegna umsókna um starfsleyfi og sérfræðileyfi og gjald vegna prófa í faglegri þekkingu og færni. Nýmæli er að heimila að leggja slík próf fyrir og er miðað við að það sé gert af viðkomandi menntastofnun í samvinnu við Embætti landlæknis.
Hér að neðan eru birtar til kynningar reglugerðirnar um heilbrigðisstéttirnar þrjátíu og þrjár. Þær verða lagðar fyrir velferðarráðherra til staðfestingar á næstu dögum og taka gildi 1. janúar næstkomandi.
- Reglugerð um menntun, réttindi og skyldur áfengis- og vímuvarnaráðgjafa og skilyrði til að hljóta starfsleyfi
- Reglugerð um menntun, réttindi og skyldur félagsráðgjafa og skilyrði til að hljóta starfsleyfi og sérfræðileyfi
- Reglugerð um menntun, réttindi og skyldur fótaaðgerðafræðinga og skilyrði til að hljóta starfsleyfi
- Reglugerð um menntun, réttindi og skyldur geislafræðinga og skilyrði til að hljóta starfsleyfi
- Reglugerð um menntun, réttindi og skyldur hjúkrunarfræðinga og skilyrði til að hljóta starfsleyfi og sérfræðileyfi
- Reglugerð um menntun, réttindi og skyldur hnykkja (kírópraktora) og skilyrði til að hljóta starfsleyfi
- Reglugerð um menntun, réttindi og skyldur iðjuþjálfa og skilyrði til að hljóta starfsleyfi
- Reglugerð um menntun, réttindi og skyldur lífeindafræðinga og skilyrði til að hljóta starfsleyfi og sérfræðileyfi
- Reglugerð um menntun, réttindi og skyldur ljósmæðra og skilyrði til að hljóta starfsleyfi og sérfræðileyfi
- Reglugerð um menntun, réttindi og skyldur lyfjafræðinga og skilyrði til að hljóta starfsleyfi og sérfræðileyfi
- Reglugerð um menntun, réttindi og skyldur lyfjatækna og skilyrði til að hljóta starfsleyfi
- Reglugerð um menntun, réttindi og skyldur lækna og skilyrði til að hljóta lækningaleyfi og sérfræðileyfi
- Reglugerð um menntun, réttindi og skyldur læknaritara og skilyrði til að hljóta starfsleyfi
- Reglugerð um menntun, réttindi og skyldur matartækna og skilyrði til að hljóta starfsleyfi
- Reglugerð um menntun, réttindi og skyldur matvælafræðinga og skilyrði til að hljóta starfsleyfi
- Reglugerð um menntun, réttindi og skyldur náttúrufræðinga í heilbrigðisþjónustu og skilyrði til að hljóta starfsleyfi
- Reglugerð um menntun, réttindi og skyldur næringarfræðinga og skilyrði til að hljóta starfsleyfi
- Reglugerð um menntun, réttindi og skyldur næringarráðgjafa og skilyrði til að hljóta starfsleyfi
- Reglugerð um menntun, réttindi og skyldur næringarrekstrarfræðinga og skilyrði til að hljóta starfsleyfi
- Reglugerð um menntun, réttindi og skyldur osteópata og skilyrði til að hljóta starfsleyfi
- Reglugerð um menntun, réttindi og skyldur sálfræðinga og skilyrði til að hljóta starfsleyfi og sérfræðileyfi
- Reglugerð um menntun, réttindi og skyldur sjóntækjafræðinga og skilyrði til að hljóta starfsleyfi
- Reglugerð um menntun, réttindi og skyldur sjúkraflutningamanna og bráðatækna og skilyrði til að hljóta starfsleyfi
- Reglugerð um menntun, réttindi og skyldur sjúkraliða og skilyrði til að hljóta starfsleyfi
- Reglugerð um menntun, réttindi og skyldur sjúkranuddara og skilyrði til að hljóta starfsleyfi
- Reglugerð um menntun, réttindi og skyldur sjúkraþjálfara og skilyrði til að hljóta starfsleyfi og sérfræðileyfi
- Reglugerð um menntun, réttindi og skyldur stoðtækjafræðinga og skilyrði til að hljóta starfsleyfi
- Reglugerð um menntun, réttindi og skyldur talmeinafræðinga og skilyrði til að hljóta starfsleyfi
- Reglugerð um menntun, réttindi og skyldur tannfræðinga og skilyrði til að hljóta starfsleyfi
- Reglugerð um menntun, réttindi og skyldur tannlækna og skilyrði til að hljóta starfsleyfi og sérfræðileyfi
- Reglugerð um menntun, réttindi og skyldur tannsmiða og klínískra tannsmiða til að hljóta starfsleyfi
- Reglugerð um menntun, réttindi og skyldur tanntækna og skilyrði til að hljóta starfsleyfi
- Reglugerð um menntun, réttindi og skyldur þroskaþjálfa og skilyrði til að hljóta starfsleyfi