2. fundur aðgerðahóps um launajafnrétti
Fundarheiti og nr. fundar: 2. fundur aðgerðahóps um launajafnrétti
Staður og stund: Velferðarráðneytið 16. janúar 2013 kl. 14.30 -16.00
Málsnúmer: VEL12100264
Mætt: Sverrir Jónsson (SVJ), Sonja Ýr Þorbergsdóttir (SÝÞ), Hannes G. Sigurðsson (HGS), Guðlaug Kristjánsdóttir (GK), Maríanna Traustadóttir (MT), Benedikt Valsson (BV), Oddur S. Jakobsson (OSJ)
Fundarritari: Birna Hreiðarsdóttir, formaður aðgerðahópsins
Þetta gerðist:
1. Fundargerð síðasta fundar borin upp til samþykktar
Fundargerð síðasta fundar yfirfarin og nokkrar breytingar gerðar.
2. Verk- og tímaáætlun
Verk- og tímaáætlun aðgerðahóps lögð fyrir fundinn. Ýmsar hugmyndir reifaðar, ma. um að markmið með samræmingu launarannsókna eigi að vera að til verði samræmd viðmið og “best practice” sem aðgerðahópurinn beiti sér síðan fyrir að verði notað við rannsóknir á kynbundnum launamun til framtíðar. Bent á mikilvægi þess að leiða saman þá aðila sem stunda slíkar rannsóknir og kynna vinnu hópsins. BHr, SÝÞ og SVJ fari yfir endurskoðan texta í framlögðum drögum að verkáætlun, sem hópurinn fær til yfirlestrar.
3. Ráðning starfsmanns aðgerðahóps
Rætt um ráðningu starfsmanns, fundarmenn á því að það þurfi að gerast sem fyrst. Ákveðið að formaður geri drög að auglýsingu um starfmann og sendi á hópinn.
Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 16.00
Næsti fundur ákveðinn 23. janúar kl 14.30-16.00
Birna Hreiðarsdóttir
Birna Hreiðarsdóttir