Próf í íslensku fyrir umsækjendur um íslenskan ríkisborgararétt
Íslenskupróf vegna umsóknar um íslenskan ríkisborgararétt verða næst haldin í maí og júní á vegum Námsmatsstofnunar og hefst skráning í prófin 1. mars nk.
Prófin verða haldin á höfuðborgarsvæðinu 3.-7. júní og á eftirtöldum stöðum á landsbyggðinni: Akureyri 29. maí, Ísafirði 30. maí og Egilsstöðum 31. maí.
Skráning í prófin fer fram með rafrænum hætti á vef Námsmatsstofnunar til og með 10. maí. Gjald fyrir þátttöku í prófi er 7.000 krónur sem greiða skal í síðasta lagi 10. maí inn á reikning Námsmatsstofnunar. Upplýsingar þar að lútandi er að finna á vef stofnunarinnar.
Sjá nánar á vefnum www.namsmat.is. Einnig eru veittar upplýsingar í síma 550 2400.
Innanríkisráðuneytið
18. febrúar 2013