Úttekt á loftgæðum og lýðheilsu
Stýrihópur skilaði í dag Guðbjarti Hannessyni, velferðarráðherra og Svandísi Svavarsdóttur, umhverfis- og auðlindaráðherra, riti sem inniheldur úttekt á loftgæðum og lýðheilsu þeim tengdum. Efnt verður til málþings í næstu viku til að fylgja ritinu eftir.
Loftmengun er fylgifiskur aukins mannfjölda og þéttbýlismyndunar á jörðinni og er hættuleg heilsu og lífsgæðum, einkum þeirra sem þjást af sjúkdómum í öndunarfærum eða hjarta og æðum. Loftmengun dregur úr lífslíkum manna og eru börn sérstaklega viðkvæm, því mengað loft getur valdið öndunarfærasjúkdómum hjá börnum og haft varanleg áhrif á lungnaþroska þeirra.
Í ritinu, sem ber heitið Hreint loft – betri heilsa, er fjallað um helstu mengunarvalda lofts bæði inni og úti á Íslandi, magn þeirra, áhrif þeirra á heilsu, vöktun og aðgerðir til að stemma stigu við skaðsemi þeirra. Einnig eru settar fram tillögur til úrbóta og mælt með umhverfis- og heilsuvísum sem nota má til að fylgjast með loftmengun af ýmsu tagi og áhrifum hennar á heilsu. Þetta er fyrsta heildarúttekt á loftgæðum á Íslandi og hafa höfundar lagt áherslu á að safna öllum tiltækum upplýsingum þar að lútandi. Gerð er m.a. grein fyrir uppruna, eiginleikum og áhrifum loftborinna efna á heilsu. Rakin eru ákvæði laga og reglugerða og alþjóðlegra samninga sem Ísland á aðild að. Þar sem niðurstöður mælinga liggja fyrir eru þær bornar saman við heilsuverndarmörk eða önnur viðmið.
Heilbrigðisráðherra skipaði stýrihópinn árið 2010 en starfið var undir formennsku umhverfis- og auðlindaráðuneytis. Auk fulltrúa ráðuneytanna tveggja sátu í stýrihópnum fulltrúar Embættis landlæknis, Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur, Stofnunar Sæmundar fróða við Háskóla Íslands, SÍBS og Umhverfisstofnunar.
Efnt verður til málþings miðvikudaginn 24. apríl, í aðdraganda dags umhverfisins, til að fylgja ritinu úr hlaði. Á málþinginu verður fjallað um áhrif loftgæða á heilsufar, loftgæði innandyra sem utan og hvað er til úrbóta. Í lok málþingsins verður pallborð þar sem framsögumenn sitja fyrir svörum fundargesta. Málþingið verður haldið á Nauthóli í Öskjuhlíð milli kl. 10 og 12 og er öllum opið svo lengi sem húsrúm leyfir. Nánar má lesa um dagskrá málþingsins hér á vef ráðuneytisins.