Níu sækja um stöðu forstjóra Skipulagsstofnunar
Níu umsækjendur eru um stöðu forstjóra Skipulagsstofnunar, en umhverfis- og auðlindaráðuneytið auglýsti starfið laust til umsóknar þann 13. apríl síðastliðinn.
Umsóknarfrestur var til 29. apríl sl. og veitir Capacent ráðningar faglega ráðgjöf á meðan á ráðningarferli stendur. Mun umhverfis- og auðlindaráðherra skipa í stöðuna að ráðningarferli loknu.