Nýtt myndband um súrnun hafsins
Súrnun hafsins, loftslagsbreytingar og áhrif á íbúa á Norðurslóðum er umfjöllunarefni nýs fræðslumyndbands sem Norðurskautsráðið hefur gefið út.
Loftslagsbreytingar eru helsta ógn við lífríki Norðurslóða. Súrnun hafsins er meiri í Norðurhöfum en á hafsvæðum sunnar á hnettinum og er ein helsta ógnin við lífríki hafsins sem er viðkvæmt fyrir breytingum af því tagi. Einn af vinnuhópum Norðurskautsráðsins, AMAP hefur nýlega sent frá sér myndband sem fjallar um þessar breytingar og möguleg áhrif þeirra á íbúa norðurslóða og lífríki hafsins.
Myndbandið Arctic Ocean Acidification