Norðlæga víddin fundar í Reykjavík
Í gær var haldinn samráðsfundur Norðlægu víddarinnar í Reykjavík sem er samráðsvettvangur Íslands, ESB, Noregs og Rússlands um umhverfismál, samgöngur, heilbrigðismál og menningarsamstarf á nyrstu svæðum Evrópu.
Á fundinum var m.a. rætt um hvernig styrkja má samstarf um heimskautssvæði Evrópu og ekki síst með tilliti efnahagsumsvifa og umhverfismála á norðurslóðum. Hægt er að nálgast upplýsingar um starfsemi norðlægu víddarinnar http://www.northerndimension. info/