Réttindi samkynhneigðra, tvíkynhneigðra og transfólks í Rússlandi
Fulltrúar alþjóðlegra mannréttindasamtaka og Evrópuráðsins telja ótvírætt að ákvæði frumvarpsins gangi gegn alþjóðlegum skuldbindingum rússneskra stjórnvalda svo sem Alþjóðasamningi um borgaraleg og stjórnmálaleg réttindi og Mannréttindasáttmála Evrópu. Íslensk stjórnvöld taka heilshugar undir þau sjónarmið og telja mikilvægt að mannréttindi hinsegin fólks verði tryggð í Rússlandi í samræmi við alþjóðlegar skuldbindingar.