Heimsóknum í stofnanir haldið áfram
Sigurður Ingi Jóhannsson, umhverfis- og auðlindaráðherra, heimsótti Veiðimálastofnun og skrifstofu Vatnajökulsþjóðgarðs í gær þar sem hann kynnti sér starfsemi stofnananna. Fyrr í vikunni heimsótti hann Veðurstofu Íslands, Umhverfisstofnun og Úrvinnslusjóð.
Ráðherra fundaði ásamt ráðuneytisstjóra með starfsfólki og stjórnendum Vatnajökulsþjóðgarðs á skrifstofum stofnunarinnar við Klapparstíg. Þar fékk hann kynningu á þjóðgarðinum og stjórnfyrirkomulagi hans auk þess sem rætt var um helstu verkefni framundan.
Á Veiðimálastofnun hitti ráðherra forstjóra og starfsfólk stofnunarinnar og fékk yfirlit yfir helstu rannsóknarsvið stofnunarinnar, uppbyggingu hennar og áhersluatriði. Þá skoðaði ráðherra aðstöðu stofnunarinnar og fékk innsýn í tækjakost hennar.
Myndir úr heimsóknunum má sjá hér að neðan.