Aðgerðaáætlun um einfaldara og skilvirkara regluverk fyrir atvinnulífið og skipun ráðgjafarnefndar
Forsætisráðherra hefur skipað nefnd til ráðgjafar um eftirlit á vegum hins opinbera og framkvæmd laga nr. 27/1999, um opinberar eftirlitsreglur. Lögum samkvæmt hefur nefndin það hlutverk að veita ráðuneytum, þeim sem eftirlit beinist að og öðrum sem hagsmuni hafa af opinberu eftirliti ráð um útfærslu á reglum þar að lútandi. Þá hefur nefndinni verið falið að vera til ráðgjafar varðandi framkvæmd á stefnu ríkisstjórnarinnar um einfaldara og skilvirkara regluverk fyrir atvinnulífið (sjá aðgerðaáætlun). Jafnframt verður hún vettvangur fyrir samráð ríkis, sveitarfélaga og hagsmunasamtaka á þessu sviði. Þá er gert ráð fyrir víðtæku samráði milli ráðuneyta um þetta efni og hafa öll ráðuneyti tilnefnt tengliði í því skyni.
Ráðgjafarnefndina skipa:
- Gunnar Haraldsson, hagfræðingur, formaður, skipaður án tilnefningar
- Halldór Árnason, hagfæðingur, tilnefndur af Samtökum atvinnulífsins
- Halldór Oddsson, lögfræðingur, tilnefndur af Alþýðusambandi Íslands
- Margrét Sanders, framkvæmdastjóri, tilnefnd af Viðskiptaráði Íslands
- Þóra Björg Jónsdóttir, lögfræðingur, tilnefnd af Sambandi íslenskra sveitarfélaga
Varamenn eru:
- Gunnlaugur Júlíusson, hagfræðingur, tilnefndur af Samband íslenskra sveitarfélaga
- Hanna Dóra Hólm Másdóttir, viðskiptafræðingur, tilnefnd af iðnaðar- og viðskiptaráðherra
- Haraldur Ingi Birgisson, lögfræðingur, tilnefndur af Viðskiptaráði Íslands
- Hrafnhildur Stefánsdóttir, lögfræðingur, tilnefnd af Samtökum atvinnulífsins
- Magnús M. Norðdahl, lögfræðingur, tilnefndur af Alþýðusambandi Íslands
Skipunartími nefndarinnar er þrjú ár í senn.
Forsætisráðuneytið og Viðskiptaráð Íslands efndu nýverið til fundar með erlendum sérfræðingum um regluverk fyrir atvinnulífið, fyrirhugaðar aðgerðir og útfærslur. Sjá nánar um fundinn hér á vef forsætisráðuneytisins.