Uppgjör framlaga vegna almennra húsaleigubóta 2012
Innanríkisráðherra hefur samþykkt tillögu ráðgjafarnefndar Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga um uppgjör framlaga vegna almennra húsaleigubóta á árinu 2012. Heildargreiðslur sveitarfélaga á almennum húsaleigubótum námu 3.568,0 milljónum króna á árinu.
Að teknu tilliti til uppgjörs á ráðstöfunarfjármagni sjóðsins til greiðslu framlaga vegna bótanna á árinu 2012 hefur greiðsluhlutfall sjóðsins verið hækkað úr 54,0% í 56,12%. Um er að ræða hækkun að fjárhæð 75,6 milljónir króna sem kemur til greiðslu á morgun.