Hoppa yfir valmynd
11. október 2013 Utanríkisráðuneytið

Vilja efla frekara samstarf við Færeyjar

Kaj Leo Johannesen og Gunnar Bragi Sveinsson
Kaj Leo Johannesen og Gunnar Bragi Sveinsson.

Engin þjóð stendur Íslendingum nær en Færeyingar sagði Gunnar Bragi Sveinsson, utanríkisráðherra, á fundi sem hann átti fyrr í dag með Kaj Leo Johannesen, lögmanni Færeyinga, um framkvæmd Hoyvíkur fríverslunarsamningsins. Markmið samningsins, sem tók gildi 1. nóvember 2006, er að koma á fót sameiginlegu efnahagssvæði á yfirráðasvæðum Íslands og Færeyja. Á fundi sínum ræddu ráðherrarnir viðskipti landanna almennt og hvernig megi nýta betur þá möguleika sem samningurinn býður upp og greiða þannig fyrir frekari viðskiptum.

Utanríkisráðherra skýrði frá því að ný ríkisstjórn hefði markað mjög skýra stefnu í vest-norrænu málunum og væri vilji til að efla enn frekar hið miklvæga samstarf sem væri við grannsvæðin, Færeyjar og Grænland. Samskiptin væru þegar náin á ýmsum sviðum en stefnt væri að að auka þau enn. Ráðherrarnir ræddu í því samhengi hvernig efla mætti samstarf Íslands og Færeyja um sameiginlega hagsmuni í sjávarútvegi og norðurslóðir og fögnuðu tillögu Vestnorræna ráðsins um að styrkja samstarf Færeyja, Íslands og Grænlands um málefni norðurslóða á þeim sviðum sem hagsmunir landanna fara saman.

Árið 2011 voru fluttar út vörur frá Íslandi til Færeyja fyrir 3,8 milljarða króna og innflutningurinn það ár frá Færeyjum nam tæpum 1.4 milljörðum.  Þegar þessar tölur er skoðaðar fyrir 2012 sést að innflutningurinn hefur dregist lítillega saman og er 1.3 milljarðar en útflutningurinn aukist í 6.8 milljarða.  Meginskýringarnar eru aukning í útflutningi á uppsjávarfiski og ýmsum iðnaðarvörum, auk þess sem útflutningur jókst á álafurðum og fiskinetum, línum og köðlum.

Hoyvíkursamningurinn

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta