Utanríkisráðherra undirstrikar mikilvægi Norðurslóða
Í ræðu sinni á alþjóðaráðstefnunni Arctic Circle í morgun undirstrikaði utanríkisráðherra, Gunnar Bragi Sveinsson, mikilvægi þróunar, uppbyggingar og umhverfisverndar á norðurslóðum á næstu árum og áratugum fyrir Ísland.
Umfangsmiklar breytingar hafa orðið á norðurslóðum á undanförnum árum, breytingar sem skipta miklu máli fyrir Ísland, nú þegar og er fram í sækir. Utanríkisráðherra fjallaði um norðurslóðir í víðu samhengi í ræðu sinni og sagði ríki Norðurskautsráðsins hafa ríkar skyldur þegar kemur að þróun og uppbyggingu á svæðinu. Hvað efnahagsumsvif og fjárfestingar á norðurslóðum áhrærir sagði ráðherra að ströngustu kröfur umhverfisverndar eiga að vera leiðarstef bæði stjórnvalda og viðskiptalífsins. Þá sagði hann stefnumótun um uppbyggingu á norðurslóðum verða að taka tillit til bæði verndunar- og nýtingarsjónarmiða.
Þá fjallaði utanríkisráðherra um nýlegar ákvarðanir ríkisstjórnarinnar sem styrkja stefnu Íslands í málefnum norðurslóða, m.a. sérstaka ráðherranefnd sem samhæfi störf ráðuneyta og stofnana í málefnum norðurslóða. Meðal fleiri verkefna má telja skoðun á mögulegri uppbyggingu alþjóðlegrar björgunar- og viðbragðsmiðstöðvar á Íslandi, frekari kynningu á þýðingu norðurslóða fyrir Ísland og áframhaldandi samstarf með viðskiptalífinu til að þróa þau tækifæri sem bjóðast bæði hérlendis og erlendis.