Samráðsfundur um málefni Kolgrafafjarðar
Málefni Kolgrafafjarðar voru rædd á samráðsfundi tveggja ráðuneyta, viðkomandi stofnana og heimamanna í Grundarfirði í dag. Á fundinum var farið yfir kosti varðandi fyrirbyggjandi aðgerðir til að koma í veg fyrir endurtekinn síldardauða í Kolgrafafirði í vetur auk þess sem drög að viðbragðsáætlun Umhverfisstofnunar voru kynnt.
Fundinn sátu fulltrúar umhverfis- og auðlindaráðuneytis, atvinnuvega- nýsköpunarráðuneytis, Umhverfisstofnunar, Hafrannsóknarstofnunar, Vegagerðarinnar, bæjarstjórnar Grundarfjarðar, Áhaldahúss Grundarfjarðar og Náttúrustofu Vesturlands auk heilbrigðisfulltrúans í Grundarfirði og ábúenda á Eiði í Kolgrafafirði. Ýmsar hugmyndir voru ræddar, s.s. möguleikar á lokun fjarðarins, frekari opnun hans og fælingaraðgerðir af ýmsum toga. Er ljóst að verkefnið er óvenju vandasamt og margir óvissuþættir um árangur. Engar ákvarðanir um aðgerðir voru teknar á fundinum en stofnanir munu halda áfram vinnu við rannsóknir og mat á einstökum kostum.
Á fundinum kynnti fulltrúi Umhverfisstofnunar ennfremur drög að viðbragðsáætlun vegna hugsanlegs síldardauða í framtíðinni. Tekur áætlunin mið af lærdómi síðasta vetrar þar sem heimamenn voru í framlínu við björgun verðmæta og hreinsun fjörunnar.
Fyrr í dag áttu Sigurður Ingi Jóhannsson, umverfis- og auðlindaráðherra og sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra og Hanna Birna Kristjánsdóttir innanríkisráðherra fund með ofangreindum stofnunum þar sem kostir varðandi fyrirbyggjandi aðgerðir voru reifaðir.
Í Kolgrafafirði Að loknum fundi buðu ábúendur á Eiði fundargestum í skoðunarferð við fjöruna í Kolgrafafirði..