Hoppa yfir valmynd
29. október 2013 Utanríkisráðuneytið

Formennskuáætlun Íslands í Norrænu ráðherranefndinni 2014

Forsætisráðherra, Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, sat í dag þing Norðurlandaráðs og tók þátt í umræðu um ungt fólk og samkeppnishæfni á Norðurlöndunum. Þá kynnti forsætisráðherra formennskuáætlun Íslands í Norrænu ráðherranefndinni fyrir árið 2014 sem ber yfirskriftina „Gróska og lífskraftur“.

Í ræðu sinni fjallaði ráðherrann um þau verkefni sem Ísland hyggst setja á oddinn í formennskutíð sinni, líkt og norræna lífhagkerfið, norræna spilunarlistann og norrænu velferðarvaktina, auk þess að leggja aukna rækt við vestnorrænt samstarf. Þá mun á formennskuárinu fara fram endurskoðun á norðurskautsáætlun Norrænu Ráðherranefndarinnar og starfrækt verður sérstakt norrænt landamæraráð sem ætlað er að vinna áfram að afnámi stjórnsýsluhindrana á Norðurlöndunum.

Hér má lesa Grósku – lífskraft Formennskuáætlun Íslendinga í Norrænu ráðherranefndinni 2014

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta